Fyrir 19 árum voru læknishéruð lögð af á Íslandi, þegar ný lög um heilbrigðisþjónustu tóku gildi. Áfram var þó stofnuninni Laugaráshéraði við haldið og áfram gegndi oddvitanefndin hlutverki sínu við að sinna málefnum Laugaráss, enda jörðin í eigu uppsveitasveitarfélaganna.
Nú hafa þau tímamót orðið, að Laugaráshérað hefur verið lagt niður og Bláskógabyggð er búin að samþykkja að kaupa hluti hinna sveitarfélaganna í Laugarásjörðinni

