1971 - 1990
Áfram hélt uppbyggingin, eftir nokkurra ára hlé í upphafi áttunda áratugarins. Nú voru skipulögð tvö ný svæði, þar sem kallaðist Vesturbyggð, fyrir vestan leikvöllinn og síðan einnig þar sem kallast Austurbyggð, sem er alveg austast, og rétt við ána, eða uppi á holti, eins og það kallast.